top of page

 

- Það sem fólk er tilbúið  að gera til þess að grennast

Megrunarkúrar

 

Til eru ótal megrunarkúrar og eru þeir mjög fjölbreyttir. Þeir hafa verið gerðir til þess að hjálpa fólki að grenna sig og koma sér í betra form. Hægt er að nálgast upplýsingar um megrunarkúra alls staðar á netinu, en hvernig vitum við hver virkar og hver virkar ekki?

 

Sumir megrunarkúrar leggja til að maður sleppi máltíðum eða það að borða mjög einhæft og of lítið af hitaeingingum (kalóríur) og drekki bara vökva í einhverja daga. Ef að tiltekinn kúr ráðleggur þér að borða færri en 1500 hitaeingar á dag og segir þér að missa fleiri en ½ - 1 kg þá myndu flestir sérfræðingar mælast til þess að þú fyndir þér eitthvað betra. Manneskja sem er um 50kg þarf að innbyrgða um 1900 hitaeiningar á dag í lítilli hreyfingu, ímyndaðu þér þá hvað manneskja í mikilli hreyfingu þarf. Ef þú villt komast af því hversu margar hitaeiningar þú þarft á dag farðu þá inná http://www.calculator.net/calorie-calculator.html og þar reiknast út þær hitaeiningar sem þú þarft á dag.

 

Ef þér er sagt að borða minna en 1500 hitaeiningar á dag þá ertu ekki í megrunarkúr sem er langvirkur. Þessi kúr er greinilega skammtíma kúr og mun hann ekki hjálpa þér að grenna þig til lengri tíma, heldur mun hann skaða þig og líkamann þinn og gera þér það erfiðara að grennast í framtíðinni. Læknar segja, að jafnvel manneskja sem að hreyfir sig reglulega geti ekki misst meira en 1 – 1 ½ kg á viku af fitu, jafnvel þótt hún borði allt of fáar hitaeiningar. Rannsóknir sýna fram á það að megrunarkúrar virka sjaldnast nema í samráði við lækni. Læknirinn segir þér þá hvað þú átt borða, hvað þú átt ekki að borða og mun hann passa upp á það að þú fáir réttu næringarefnin og vítamínin sem líkaminn þarf. Hann mun einnig segja þér hversu mikla hreyfingu þú þarft á dag til þess að brenna ekki of mikið eða of lítið af hitaeiningum.                    

Ef manni finnst maður vera of þungur eða er ekki ánægður með sjálfa/n sig þá á maður ekki að byrja á einhverjum skammtíma megrunarkúr sem mun gera líkamsástandið þitt illt verra en það var áður. Maður á frekar að byrja á því að borða fjölbreytt, minnka gos, nammi og skyndibitaát og byrja að hreyfa sig reglulega. Einnig þarft þú að passa hvað þú lætur mikið ofan í þig af hitaeiningum og óhollri fæðu.

Heilbrigði og Hollusta

Rannsóknarverkefni

© 2023 by Salt AND Pepper.  Proudly created with Wix.com

bottom of page