
Ofþjálfun
Flestir eru á því að allt sé gott í hófi og að því sé gott að hafa í huga áður en byrjað er á einhverju verkefni að ofgera sér ekki. Heimurinn sem við lifum í einkennist af öfgum, svo margir þeirra sem stunda líkamsrækt fara út í öfgar og ofþjálfa sig. Fólk byrjar á nýju æfingarferli og æfir stanslaust í 6-8 vikur til þess að „eyðileggja“ ekki árangurinn. En eftir 6-8 vikur fer fólk að finna fyrir ýmsum einkennum sem koma vegna hvíldarleysi; Þreyta, máttleysi og orkuleysi, Verkir í vöðvum og liðamótum, Svefnleysi, Höfuðverkur, Ónæmiskerfi verður verra, kvef og aðrar pestir, Afkastageta á æfingum minnkar, Pirringur og skapsveiflur, Þunglyndi, Minni kynhvöt, Aukin meiðslatíðni, Minni matarlyst, Metnaðarleysi fyrir íþróttinni. Það er erfitt að finna milli veg, hvenær eru æfingar of miklar og hvenær of litlar? Það getur verið mjög einstaklingsbundið og gott er fyrir hvern og einn einstakling að finna æfingarplan sem hentar sér. Mikilvægar æfingar skapa einnig sýru í líkamanum og því er mikilvægt að taka sér hvíld inn á milli svo að líkaminn geti unnið úr sýrunni því þá skila æfingarnar árangri. Áragnur næs best í litlum skrefum, margt smátt gerir eitt stórt.
Heilbrigði og Hollusta
Rannsóknarverkefni
