Niðurstöður og Prógram
Undanfarnar vikur höfum verið að vinna að lokaverkefninu okkar sem er um heilsu, heilbrigði, mataræði og sjúkdóma sem þessu tengjast, s.s offitu, lystarstol og lotugræðgi. Í þessu verkefni gerðum við könnun og ákváðum að sjá hversu mikið maður getur lést með réttu mataræði og klukkutíma hreyfingu á dag. Svavar stærðfræðikennarinn okkar bauð sig fram í verkefnið og því byrjuðum við á því að mæla og vikta hann. Það sem við mældum var mittið á honum sem var 125cm og þyngd hans var 125,2 kg, svo tveim vikum seinna viktuðum við hann aftur og þá var hann 123,2kg. Sem þýðir að hann léttist um 2 kíló á tveimur vikum bara með því að breyta mataræði sínu.
Mataræði hans var breytt þannig að hann borðaði fimm máltíðir á dag. Hann borðaði þrjár aðalmáltíðir sem eru morgunmatur, hádegismatur og kvöldmatur, en í stað þess að borða einungis þessar máltíðir eins og hann gerði alltaf þá bættum við við tveimur litlum og hollum máltíðum sem eru nesti klukkan 09:50 og kaffi klukkan 14:00. Þessar máltíðir innihéldu einn til tvo ávexti hvor um sig. Vegna þessara tveggja máltíða sem bætt var inní, borðaði hann minna í hinum máltíðunum. Hann hætti að dekka allt gos nema sódavatn og borða sælgæti. Hann fékk pizzu einu sinni í viku en annars borðaði hann mat eins og fisk, kjúkling og salat.
Svavar hefur alltaf verið mikið fyrir að hreyfa sig en eftir að hann meiddist mátti hann lítið gera. Til dæmis má hann ekki hlaupa út af bakinu og getur ekki gert allar æfingar vegna baksins. En þrátt fyrir þessi meiðsl settum við upp plan sem við svo bættum við þegar leið á tímann. Fyrstu vikuna byrjaði hann á því að gera 2x15 magaæfingar og armbeygjur og ganga 30 mínútur á dag, svo hækkuðum við það upp í 2x20 magaæfingar og armbeygjur og ennþá 30 mínútna göngutúr á dag. Seinustu tvær vikurnar var hann samt með stöðugt hreyfingar- prógramm sem var 2x25 magaæfingar og armbeygjur og 30 mínútna göngutúr.
Rannsóknin okkar á Svavari hefur átt sér stað undanfarnar vikur og fannst okkur því sniðugt, svona rétt undir lokin, að við myndum taka viðtal við hann og spyrja hann nokkurra spurninga. Við spurðum hann hvernig honum hafi liðið fyrstu vikuna og hvort það hafi verið erfitt að byrja í svona átaki. Svavar sagði að þetta hefði verið svolítið erfitt fyrstu vikuna en honum leið samt betur þrátt fyrir erfiðleikana. Það var þó einungis erfitt fyrstu vikuna, þegar leið á tímann varð þetta léttara og honum leið mikið betur. Hann átti auðveldara með að vakna og var ekki uppgefinn eftir vinnudaginn. Honum fannst hann vera endurnærður og hraustur. Bara að vita að honum leið betur sýnir mjög vel hversu mikilvægt heilbrigt mataræði og hreyfing er fyrir okkur. Svavari líður svo vel núna að hann ætlar að halda áfram með átakið í sumar og vonandi bara til lífstíðar.
Viðtal
Heilbrigði og Hollusta
Rannsóknarverkefni
