Sjálfsmynd
Allar hugmyndir sem þú hefur um hver þú ert kallast sjálfsmynd; myndin sem þú dregur upp af sjálfri þér. Sjálfsmyndin er veigamikill þáttur í andlegri líðan. Allt sem við gerum, hugsum og segjum hefur eitthvað að gera með sjálfsmynd okkar. Hún hefur áhrif á það hvernig við hegðum okkur og er okkar innri maður. Sjálfsmynd er þó ekki staðreynd heldur er hún hugmynd og endurspeglar ekki alltaf hvað öðrum finnst um þig.

Við erum jafn ólík og við erum mörg og misjafnt er hvort fólk hefur veika eða sterka sjálfsmynd. Sjálfsmynd okkar flestra er að mótast allt okkar líf en þó mest á unglingsárunum. Fyrir unglinga og ungt fólk er sérstaklega mikilvægt að hafa góða sjálfsmynd því frammi fyrir þeim standa mikilvægar ákvarðanir sem þau þurfa að taka sem stuðla meðan annars að líkamlegu og andlegu heilbrygði þeirra. Allir þurfa að taka ákvarðanir um mataræði, hreyfingu, áfengis og vímuefnanotkun en gæta verður að því að taka þær ákvarðanir með heilum hug og með framíðarafleyðingar í huga. Til þess þarf gott sjálfsöryggi og góða sjálfsmynd sérstaklega ef vinahópurinn er drykkfelldur eða eitthvað þaðan af verra sem tengist hópþrýstingi. Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt fram á það að eftir því sem sjálfstæði einstaklinga til ákvörðunar er sterkari því minna taki þau mark á hópþrýsting frá vinum um ákveðna hegðun eða útlit, það byggist að miklu leyti á sterkri sjálfsmynd.
Rannsóknir hafa sýnt að fullorðið fólk sem var með lágt sjálfsmat sem unglingar eru líklegri til að verða undir í lífinu en þeir sem höfðu hátt sjálfsmat á sínum unglings árum . Svo dæmi sé nefnt þá eiga þeir sem voru með lítið sjálfsálit frekar við geðræn vandamál að stríða, þunglyndi, kvíðaraskanir og offitu. Jafn fram kom fram að unglingar með lágt sjálfsálit eru líklegri til að vera á sakaskrá sem fullorðið fólk og fremja frekar ofbeldisfulla glæpi. Að auki kom fram að þeir sem voru sem hátt sjálfsálit höfðu lengri skólagöngu.
Það má því segja að sjálfsmynd okkar hafi áhrif á allt í lífi okkar; velgengni, hamingju, árangur, afrek, ást og sjálfstæði. Allar athugasemdir sem við höfum tekið til okkar og allt sem hefur verið sagt við okkur, bæði jákvætt og neikvætt mótar þessa mynd. Hvort sem þessi mynd er góð eða slæm þá leiðir hún okkur í gegnum daglegt líf og hefur áhrif á allar þær ákvarðanir sem við tökum.
Heilbrigði og Hollusta
Rannsóknarverkefni
