Offita
Offita (Obesity) er lífshættulegur sjúkdómur sem hefur mikil áhrif á heilsu og lífstíl. Offita verður til þegar einstaklingur borðar og drekkur fleiri hitaeiningar en hann brennur í gegnum hreyfingu eða við dagleg störf, líkaminn geymir þessar auka hitaeiningar sem fitu og hún safnast upp. Þegar líkamsmassastuðull (BMI) er komin yfir 30 þjáist fólk í lang flestum tilfellum af offitu, en gæta verður að því að líkamsþyngadarstöðuillinn er alls ekki gallalaus því hann tekur ekki tillit til vöðvamassa. Offita eykur hættuna á sjúkdómum og skemmir í raun og veru heilsu fólks. Algengir sjúkdómar sem tíðkast hjá offitu sjúklingum eru meðal annars, astmi, hjartasjúkdómar, blóðtappi í hjarta og heila, sykursýki, hár blóðþrýstingur, þvagsýrugigt, slitgigt í höndum, hnjám og mjöðmum, og krabbamein á ýmsum stöðum.



Fituvandamál í heiminum tengjast stórfyrirtækjum sem hugsa einungis um peninga en ekki um heilsu þjóðar sinnar. Fyrirtækin bæta sykri í flest allt sem við borðum, sem leiðir til þess að við verðum háð sykri. Sykur örvar sama stað í heilanum og kókaín, við verðum háð sykri rétt eins og við verðum háð kókaíni, hassi, spítti, tóbaki eða sígarettum. Þetta veldur því að við kaupum mikið magn af nammi, gosi, skyndibitum og vörum sem innihalda mikinn sykur. Þessar vörur innihalda takmarkaða næringu sem endist í stuttan tíma, og þá þurfum við að borða aftur og aftur og aftur. Að mestu leyti eru það börnnin sem eru hrifnust af hamborgurum, pítsum, núðlum og kóki. Þessar tegundir af matvælum eru auðveldlega tiltækar og ódýrari heldur en hollar máltíðir. Margir Foreldrar vinna mikið og hafa kannski ekki tíma til þess að elda, svo þau gaupa eitthvað fljótt og þægilegt, oftast inniheldur þessi matur miklu magni af hitaeiningum.
Offita er algengust í Ameríku þar sem 80 prósent af öllum matvælum inniheldur viðbættan sykur og samkvæmt nýlegum niðurstöðum, er um það bil einn þriðji af Ameríkönum offitusjúklingar. Hér á landi þjáist fimmtugur landsmanna af alvarlegri tegund ofþyngdar, við erum fjórða feitasta þjóð Evrópu eftir 1. Bretlandi, 2. Írlandi, 3. Möltu. Offitusjúklingar eiga erfitt með að framkvæma dagleg verk svo sem ganga, fara í sturtu eða skeina sér. Þessi óholli lífstíll gerir það að verkum að einstaklingur sem er tvítugur getur verið með heilsufar fertugs manns en rannsóknir sanna að einstaklingur í offitu geti misst fjórtán ár af lífi sínu.



Offita safar oft af þunglyndi en þunglyndi getur einnig stafað af offitu, þunglyndi getur valdið átröskunum í báðar áttir. Bæði þunglyndi og offita hafa sterk erfðafræðileg tengsl, svo börn fólks sem glíma við báða eða annan hvorn vandann eru mjög líkleg til að glíma við samskonar sjúkdóma síðar á lífsleiðinni. Ef foreldrar barns eru í yfirþyngd hefur það áhrif á gen barnsins því það fæðist oft með hægvirkan skjaldkirtil.
Heilbrigði og Hollusta
Rannsóknarverkefni
