
?
Heilbrigði og gott líferni er eitthvað sem margir sækjast eftir en ekki allir ná að tileinka sér. Heilbrigði byggir á andlegri, líkamlegri og félagslegri líðan, því verður að huga að mörgu til þess að lifa heilbrigðu lífi. Gott líferni og heilbrigði er í raun svo náskylt að erfitt er að skilgreina það. Heilbrigði er ekki eitthvað sem manneskja getur keypt sér eða fundið út í búð. Hver og ein manneskja þarf að finna sitt heilbrigði sjálf. Allir eru hvattir af lýðheilsustöð til að stunda gott líferni; halda sig frá öllum fíkniefnum og vímugjöfum, stunda reglulega hreyfingu, borða hollan mat, fá nægjan svefn og svona mætti lengi telja. Á síðunni er hægt að finna frekara ýtarefni.
Rannsóknarspurning
Síðastliðnar vikur höfum við verið að vinna að lokaverkefninu okkar, um heilsu og hollustu. Við höfum lært mikið af þessu verkefni, enda höfum við lagt mikla vinnu í það og erum mjög ánægðar með afraksturinn. Við höfum unnið aðallega eftir tveimur rannsóknaspurningum, en út frá þeim hafa vaknað ýmsar spurningar og verkefnið í heild sinni er í raun og veru mun stærra en það átti að vera í byrjun. Rannsóknarspurningarnar okkar eru; Hvað felst í heilbrigðu og góðu líferni? & Hvernig getur maðurinn stuðlað að andlegri og líkamlegri heilsu? Nú munum við gera útdrátt úr öllu efninu okkar, til þess að svara þessum spurningum í stuttu máli.
Maðurinn getur stuðað að andlegri og líkamlegri heilsu með ýmsum þáttum því það er margt sem spilar inn í. Heilsa okkar hefur áhrif á allt sem við gerum, bæði andlega og líkamlega. Andleg heilsa er í raun og veru huglægt mat á því hvernig okkur líður og felst meðal annars í sjálfsmynd okkar. Þeir sem eru andlega heilbrigðir þekkja muninn á réttu og röngu, þeim finnst þeir vera jafn mikilvægir og aðrir og hugsa um bæði eign hag og annarra. Ójafnvægi eða óánægja á þessu sviði getur haft slæmar afleiðingar, fólk getur fengið ýmisskonar geðræna sjúkdóma eins og ýmsar tegundir átraskana svo sem offitu, lystarstol og lotugræðgi sem getur oft leitt til þunglyndis. Til að manni líði vel er mikilvægt er að rækta sambönd vina og fjölskyldu, líða vel á vinnustað og líða vel með allt sem maður gerir í lífinu.
Heilbrigði og Hollusta
Rannsóknarverkefni
