Þrennskonar heilbrigði
Þegar talað er um heilbrigði er almennt átt við líkamlegt- félagslegt- og andlegt heilbrigði. Þetta eru grundvallaratriði heilsu.
Fyrir langa löngu voru einkunnarorð Forn -Grikkja „heilbrigð sál í hraustum líkama“. Þeir höfðu áttað sig á samhenginu milli þessara tveggja þátta og þótti sjálfsagt að sameina vöxt og viðgang líkama og sálar. Forn Grikkir gættu að sál sinni með því að stunda heimsspeki og náttúruvísindi samhliða þjálfun líkamans. Ef sál okkar er ekki heilbrigð og okkur líður ekki vel getur það komið niður á líkamshreysti okkar og svo virkar þetta líka öfugt, ef líkami okkar er ekki hraustur þá getur okkur ekki liðið vel og allt þetta getur leitt okkur út í alls konar öfgar og sjúkdóma. Það eru því gömul sannindi og ný að maðurinn þarf að rækta sálina í hraustum líkama.

Líkamlegt heilbrigði
Líkamlegt heilbrigði felur í sér gott mataræði til þess að halda líkamanum fullum af orku og til þess að einstaklingnum geti liðið vel. Einnig felur það í sér hreyfingu, hún er tekin með vegna þess að án hennar getur safnast upp of mikil fita og orka sem getur leitt til þess að fólki líði illa og það getur leitt til þunglyndis og alls konar sjúkdóma s.s. offitu og lystarstols. Til þess að ná líkamlegu heilbrigði er mjög mikilvægt að vera með heilbrigða hugsun og vilja. Hugsunin er svo að við getum hugsað rétt og séð rétt. Ef að hún er ekki rétt þá getum við séð eitthvað sem við viljum sjá eða það sem viljum ekki sjá. Viljinn er góður þegar kemur að mataræði, með sterkum vilja er hægt að standast freistingar eins og óhollan mat, nammi, snakk, skyndibita og margt fleira.
Félagslegt heilbrigði
Félagslegt heilbrigði byggist á þremur grunnþörfum:
-
Þörfinni til þess að vera elskaður, virtur af öðrum og að vita að einhver sé til staðar fyrir hann án þess að ætlast sé til einhvers á móti. Þetta vísar til þeirrar hlýju sem látin er í ljós án tillits til athafna eða stöðu einstaklingsins.
-
Einnig hefur hver og einn einstaklingur þörf fyrir að fá viðurkenningu fyrir eitthvað sem tengist athöfnum hans og þá þörf finnur einstaklingurinn þegar hann hefur gert eitthvað sem hann telur að skipti máli. Þetta hefur meira að segja um hvað einstaklingurinn gerir en ekki hver hann er og hvaða stöðu hann gegnir.
-
Þriðja þörfin er uppfyllt þegar einstaklingnum finnst hann njóta virðingar, sé tekinn alvarlega og hann er sjálfstæður og óháður öðrum. Hann vill einnig hafa áhrif og vera þekktur fyrir hæfileika sína og framkvæmdir.

Andlegt heilbrigði
Andleg heilsa er í raun og veru huglægt mat á því hvernig okkur líður og felst í öllu því sem við hugsum og gerum. Þeir sem eru andlega heilbrigðir hafa yfileitt gott sjálfstraust, þekkja muninn á réttu og röngu, þeim finnst þeir vera jafn mikilvægir og aðrir og þeir hugsa bæði um eigin hag og annarra. Ójafnvægi eða óánægja á þessu sviði getur haft slæmar afleiðingar; fólk getur fengið ýmis konar geðræna sjúkdóma svo sem þunglyndi, offitu eða lystarstol. Til að manni líði vel er mikilvægt er að rækta sambönd vina og fjölskyldu, líða vel á vinnustað og líða vel með allt sem maður gerir í lífinu. Andlegt heilbrigði er að halda sér stöðugum í bæði skapsveiflum og gjörðum. Góð sjálfsmynd er undirstöðu atriði fyrir gott andlegt heilbrigði.

Heilbrigði og Hollusta
Rannsóknarverkefni
