top of page

Hreyfing

 

Hamingja er líðan sem allir menn sækjast stöðugt eftir.  Sumir reyna að finna hamingjuna með því að ná starfsframa, eignast mikla peninga, vera mikilsmetin og svona mætti lengi telja.  Þessir þættir geta hjálpað þér að ýmsu leyti í átt að hamingjunni en um leið og við höfum eignast peninga eða náð einhverju markmiði stendur hamingjan yfirleitt stutt yfir.  Einnig vitum við öll að þú munt aldrei verða hamingjusamur ef þér líður ekki vel í eigin líkama.  

Mataræði og hreyfing stuðlar að vellíðan og þeir sem hreyfa sig mikið og reglulega eiga erfitt með að sleppa því að fara á æfingu. Þegar við hreyfum  okkur mikið  framleiðir líkaminn endorfín (endogenous morphine), sem virkar líkt og dóp fyrir líkamann, og er náskylt morfíni.  Þegar endorfín losnar frá heiladinglinum við stífa þjálfun, fer það út í blóðrásina og þaðan berst það til mænunnar og heilans.  Efnið hefur sársaukaslævandi áhrif og veldur vellíðan.  Því má segja að íþróttafólk verður „háð“ því að hreyfa sig.    

Öllum ber nauðsyn að hreyfa sig, óháð kyni, aldri og kynþætti.  Lýðheilsustöð mælir með því að fullorðið fólk hreyfi sig 30 mínútur á dag og börn 60 mínútur á dag, hreyfingin á að vera miðlungserfið eða erfið en henni má skipta niður í nokkur styttri tímabil yfir daginn, en viðmið Bandaríska heilbrigðisyfirvalda eru einmitt þau sömu.  Regluleg hreyfing hefur ekki aðeins áhrif á líðan okkar heldur kemur hún í veg fyrir ýmis konar sjúkdóma, bæði langvinna og skammæa. 

Heilbrigði og Hollusta

Rannsóknarverkefni

© 2023 by Salt AND Pepper.  Proudly created with Wix.com

bottom of page