Lýsi og fiskur
Lýsi er vítamín sem hefur fylgt okkur í margar aldir. Lýsi er talið hafa bjargað lífi og heilsu margra Íslendinga í gamla daga vegna fitu sinnar og nauðsynlega vítamína. Talið er að nóg sé að taka lýsi allan ársinshring án annarra vítamína, þó að stundum sé gott að taka önnur vítamín með lýsinu á ekki að vera þörf á þeim. Lýsi er hrein hollusta með háu hlutfalli af fjölómettuðum fitusýrum, auðugt af Omega 3 fitusýrum og A- og D- vítamínum og viðbættu E-vítamíni. Íslendingar hafa alltaf litið á sig sem fiskiþjóð og er fiskur mikilvæg auðlind fyrir landið. Nú til dags er fiskinotkunin búin að snar minnka síðan á síðustu áratugum, minnkun notkun fisks er ekki góð fyrir manneskju vegna Omega-3 fitusýrunum sem er í fiskinum og einnig útaf D-vítamíni og hágæða próteinum auk þess sem hann er ríkur af joði og selen.


Vítamín
Vítamín eru lífsnauðsynleg til þess að viðhalda lífinu. Skortur eða ofneysla vítamína getur leitt til sjúkdóma. Sumir halda að vítamín geti komið í stað matar eða minnkað þörf okkar fyrir mat. En það er alrangt. Þau innihalda engar kalóríur, prótein, steinefni, fitu eða vatn, en þau eru nauðsynleg, vegna upptöku þessara efna til að þau nýtist okkur. Þau eru eins konar hjálparefni fyrir okkur. Þótt aðeins sé skortur á einu vítamíni, getur komist ójafnvægi á starfsemi líkamans. Öll vítamínin eru líkamanum mikilvægir hvatar. Þess vegna er nauðsynlegt að borða eins fjölbreytta fæðu og hægt er. Vítamín sem nú eru þekkt eru þessi A, B1, B2, B3, B5, B6, B10, B11, B12, B13, B15, B17, C, D, E, F, G, H, K, L, M, P, T, U. Af og til uppgvötast ný en enn eru mörg ófundin.
Steinefni
Oft er talað er um vítamín og steinefni í einu vetfangi, eins og þau séu það sama en svo er ekki. Steinefnin hjálpa vítamínunum að starfa rétt. Til eru mörg steinefni en einungis 10 þeirra eru lífsnauðasynlegur dagskammtur hjá okkur. Þessi steinefni eru Kalk(Kalsíum), joð, járn, magnesíum, fosfór, kopar, mangan, króm, molybden, selen og sink. Þessi steinefni fáum við með því að borða fjölbreytta fæðu.
Heilbrigði og Hollusta
Rannsóknarverkefni
