top of page

 

Lystarstol / anorexía er einn þekktasti átröskunarsjúkdómurinn sem hefur áhrif bæði á líkamma og sál. Fólk með anorexíu á það til að hreyfa sig mikið en borða nærri ekkert, það eina sem það hugsar um eru hitaeiningar, megrun og þyngd sína.  Þetta getur byrjað sem megrun en farið  úr böndunum og viðkomandi fer að ímynda sér fitu þar sem engin er. Þegar átröskunarsjúklingurinn  lítur í spegil sér hann allt aðra manneskju sem er miklu feitari en í raun og veru. Allir í kringum sjúklinginn segja að hann sé of mjór en hann er sá eini sem sér það ekki, en langar samt að sjá það sem allir aðrir sjá svo hann sveltir sig. Anorexía greinist hjá báðum kynjum en er algengari hjá stelpum.

 

Anorexía byrjar yfirleitt á unglingsárum. Fólk hættir að borða feitan og hitaeiningaríkan mat og líkaminn fer þá að brenna sína eigin fitu fremur en matinn sem það borðar. Orsakir þessa eru andlegar; fólk hefur geðröskun og finnst það vera feitara og þyngra heldur en það er. Henni fylgir andleg vanlíðan (þunglyndi), kvíði, félagsleg einangrun, sjálfsmorðshugleiðingar, lágt sjálfsáliti, einbeitingaskortur svo eitthvað sé nefnt. Ef meðferð við vandanum hefst snemma getur hún verið árangursrík og þá eru meiri líkur á að einstaklingnum batni. Ómeðhöndluð Anorexía getur leitt til hungurs og alvarlegra heilsuvandamála svo sem beinþynningar, nýrnaskemmda og hjartasjúkdóma. Átraskanir geta í verstu tilfellum leitt til dauða.

Lystarstol/ Anorexía

 

Flestir með Anorexíu reyna að fela einkenni sín með því að t.d klæðast víðum fötum, en ekki er hægt að fela hárið sem er að þynnast, húðina sem gránar eða síendurtekin yfirlið. Fyrsta skrefið í að ráða við Anorexíu er að viðurkenna að hafa hana, það er stórt skref því þegar einhver viðurkennir að hafa Anorexíu verður hann frjáls til að tala um vandamál sín. Meðferð felur í sér aðstoð lækna eins og  geðlækna og næringarfræðinga. 

Búlimía/Lotugræðgi

Búlimía/lotugræðgi er annar þekktasti átröskunarsjúkdómurinn, hann er ólíkur Lystarsol en í báðum þessum tilfellum eru sjúklingarnir mjög uppteknir af líkamsþyngd og hræðslu við að þyngjast. Búlimía er einnig geðröskun, þar sem fólk borðar óhóflegt magn af óhollum mat og neyðir sig svo til að kasta honum upp með því að stinga puttanum ofan í kok eða með því að taka laxerandi (hægðalosandi)  lif. Þetta er gert til að maturinn nái ekki að meltast og þar afleiðandi komist lítil sem engin næring í líkamann. þetta getur valdið alvarlegum vandamálum svo sem innvortis blæðingum, sykursýki, magasári, nýrnaskemmdum, hjartsláttartruflunum, röskunum á tíðahring (hjá konum) og lágs blóðþrýstings. 

Lotugræðgi fylgir ekki endilega þyngdartap eða þyngdaraukning, einstaklingurinn er oftast í sömu þyngd eða með breytilega þyngd í hverri viku, mánuði eða ári.

 

Önnur af orsökum Búlimíu er glerungseyðing tanna (tanneyðing/tanntæring)  sem á sér stað í hvert skipti sem maður ælir.

Heilbrigði og Hollusta

Rannsóknarverkefni

© 2023 by Salt AND Pepper.  Proudly created with Wix.com

bottom of page